Mynd
Sveitarfélag
Engin atkvæði ennþá

Esjan upp að Steini

Esjan, bæjarfjall Reykjarvíkur, blasir við borgarbúum og þar stunda tugþúsundir fjallgöngu og útivist á hverju ári. Gangan upp að Steini er sá viðkomustaður sem flestir stefna á og ætti að vera flestum fær. Vegalengdin er um 6,6 km og er göngutíminn 1-3 klst., allt eftir því hversu hratt er farið. Leiðin liggur frá bílastæði við Mógilsá í Kollafirði. Eftir stutta göngu frá bílastæðinu er komið að göngubrú áður en gengið er upp Þvergi. Fyrir ofan er svo Smágil og skiptist stígurinn þar í tvennt og í þessari göngu er brattari leiðin gengin upp um Einarsmýri og leiðin gengin niður. Brýnt er að fylgja merktri leið öryggisins vegna og einnig til að hlífa gróðri því fjölmargir leggja leið sína á Esjuna á degi hverjum. Að vetrarlagi er nauðsynlegt að hafa hálkubrodda meðferðis þar sem hálka getur orðið mikil á leiðinni.

Opna Kort
Upphafsstaður leiðar

Esjan bílastæði

Nánari Upplýsingar

Tímalengd

Vegalengd

6.693,8m

Erfiðleikastig

Samanlögð hæðarhækkun

815,7m

Mesta hæð

667,1m

Tímabil

MEIRAMINNA

Sýnileiki leiðar

Lýsing

Breidd á stíg

Hættur

Hindranir

Þjónusta á leiðinni

Upphafspunktur (lengd/breidd)

64 .20,
-21. 71

Hæð upphafspunkts

73,4m

Samanlögð hæðarlækkun

814,0m

Hnit hæsta punkts

64 .23,
-21. 71

Lægsta hæð

73,4m

Hnit lægstu hæðar

64 .20,
-21. 71
Loka
esjan_upp_að_steini.gpx

Esjan bílastæði