Mynd
Sveitarfélag
Engin atkvæði ennþá

Hólmahringur Elliðaárdal

Skemmtilegur og stuttur hringur um Hólmann í Elliðarárdal sem er tilvalinn fyrir alla fjölskylduna. Gengið er upp frá Elliðaárstöð með fram slóða sem liggur í gegnum skógræktina. Áður en komið er að Rafveituheimilinu þá er beygt til hægri yfir trébrú og stíg sem liggur til vinstri fylgt áfram að Kermóafossum. Gaman er að ganga niður að fossinum og bera hann augum enda ákaflega fallegur. Göngunni er svo haldið áfram eftir stígnum í Hólmanum. Í nokkrum skógarrjóðrum á leiðinni má sjá hönnunarinnsetningar sem komið hefur verið fyrir, það er því um að gera að fara örlítið út af leið til þess að skoða og njóta þeirra. Leiðin endar svo aftur þar sem gangan hófst. Eftir gönguna er ákaflega gaman að skoða sig um svæðið við Elliðaárstöð þar sem mikil uppbyggin hefur verið undanfarin ár og má þar meðal annars finna kaffihús og skemmtilegan leikvöll.

Opna Kort
Upphafsstaður leiðar

64.11996, -21.83804 Bílastæði Elliðaárdal

Nánari Upplýsingar

Vegalengd

2.475,3m

Erfiðleikastig

Samanlögð hæðarhækkun

225,6m

Mesta hæð

129,6m

Tímabil

MEIRAMINNA

Sýnileiki leiðar

Lýsing

Breidd á stíg

Hindranir

Þjónusta á leiðinni

Áhugaverðir áningarstaðir

https://ellidaarstod.is/

Upphafspunktur (lengd/breidd)

64 .11,
-21. 83

Hæð upphafspunkts

82,5m

Samanlögð hæðarlækkun

225,4m

Hnit hæsta punkts

64 .11,
-21. 82

Lægsta hæð

76,3m

Hnit lægstu hæðar

64 .11,
-21. 83
Loka
hólmahringur_elliðaárdal.gpx

64.11996, -21.83804 Bílastæði Elliðaárdal