Mynd
Sveitarfélag
Engin atkvæði ennþá

Varmá og Álafosskvos

Álafosskvosin er sjarmerandi svæði sem gaman er að heimsækja. Húsin eru frá ýmsum tímaskeiðum og við árbakkan stendur gamla sundlaugarbyggingin sem er ein sú elsta á landinu. Hér er að finna stíga sem liggja um svæðið og Álanesskóg sem er einn elsti skógur Mosfellsbæjar. Álafossinn er fallegur foss í Varmá sem liðast í gegnum Álafosskvosina. Varmá og Álafossinn er á náttúruminjaskrá en þar hófst ullariðnaðarævintýri í kringum aldarmótin 1900 og var vatnsaflið úr ánni nýtt til þess að knýja vélar. Áin er ylvolg og var vinsælt að stinga sér til sunds, sjá má leifar af gömlum stökkbrettum við ána. Vinsælt er að heimsækja svæðið en mikilvægt er að fylgja stígum og merktum leiðum.

Opna Kort

Nánari Upplýsingar

MEIRAMINNA

Samgöngur

Leið 7 Stopp Álafoss

Loka