Mynd
Sveitarfélag
Engin atkvæði ennþá

Elliðaárdalur

Elliðaárdalurinn er eitt stærsta græna svæðið innan þéttbýliskjarna Reykjavíkur. Hann er jafnframt eitt vinsælasta svæðið til útivistar, leikja og íþróttaiðkunar af ýmsu tagi. Dalurinn einkennist af fjölbreyttu umhverfi, landslagi og gróðurfari en þungamiðjan eru Elliðaárnar sem dalurinn er kenndur við. Elliðaár falla úr Elliðavatni í norður og vestur milli Breiðholts og Selás- og Ártúnsholts í tveimur kvíslum. Má segja að þær skipti borginni í tvennt við Elliðaárósa. Lax gengur upp í árnar og eru þær með vinsælli laxveiðiám á suðvesturhorni landsins. Vinsælt er að ganga, hjóla eða hlaupa um dalinn. Tilvalið er að fara í lautarferð í skóginum en Rafmagnsveita Reykjavíkur hóf þar skógrækt árið 1951. Elliðaárstöðin í dalnum hefur verið vakin til lífsins þar sem húsin hafa verið uppgerð og öðlast nýtt hlutverk fyrir gesti að njóta. Þar er að finna kaffihús og skemmtilegan leikvöll auk þess sem ýmis fræðsla fer þar fram og reglulegir viðburðir.

Opna Kort

Nánari Upplýsingar

MEIRAMINNA

Upplýsingar um viðburði

https://ellidaarstod.is/vidburdaflokkur/vidburdir/

Menning / saga

https://reykjavik.is/ellidaardalur

Sund

Árbæjarlaug

Samgöngur

Stöðvar: Elliðaárdalur/Blesugróf (3-11-12-17-57-58-59), Árbæjarsafn (12-24), Rafstöðvarvegur (19),

Loka

Tengdar gönguleiðir

Tilvalin fjölskylduganga um fallega Hólmann í Elliðaárdal.
Sveitarfélag