Mynd
Sveitarfélag
Engin atkvæði ennþá

Víðistaðtún

Víðistaðatún er fallegur almenningsgarður umkringdur hrauni við Víðistaðakirkju og skátaheimili Hraunbúa. Á svæðinu ættu allir að geta fundið sér eitthvað að gera við sitt hæfi. Svæðið státar af fjölmörgum útilistaverkum sem tilvalið er að skoða og börn hafa gaman af að leika sér í. Nóg er að gera fyrir börnin. Þau geta leikið sér í aparólu, ærslabelg og kastala. Einnig er þar skógarlundur sem gaman er að leika sér. Þegar allir eru orðnir svangir er hægt að grilla í grillhúsi sem er rétt hjá kastalanum. Í garðinum er eini tennisvöllur Hafnfirðinga og einnig sex holu frisbígolfvöllur. Frítt er á völlinn og ekki nauðsynlegt að bóka fyrirfram. Upplýsingaskilti um leikreglur og skipulag vallarins er á túninu fyrir neðan Víðistaðakirkju. Á Víðistaðatúni er tjaldsvæði sem er opið frá miðjum maí fram í lok ágúst. Á svæðinu er stórt viðburðatún þar sem fjölmargar uppákomur eru haldnar árlega. Þar má nefna sýningar Hundaræktarfélags Íslands og Víkingahátíðina sem Rimmugýgur sér um, auk þess sem Krikketsamband Íslands er með reglubundnar æfingar á svæðinu yfir sumartímann.

Opna Kort

Nánari Upplýsingar

MEIRAMINNA

Sund

Sundhöll Hafnarfjarðar

Samgöngur

Leið 19 Stopp Sundhöll Hafnarfjarðar

Loka

Tengdar gönguleiðir

Falleg ganga meðfram höfninni í Hafnarfirði sem hentar öllum.
Sveitarfélag